Flensubæli 45
Þetta er þriðja vikan sem veikindi herja á íbúa í Hraunbrúninni. Hilmir Hrafn, hraustasti maður í heimi, byrjaði - var lasinn í heila viku. Lýður kom inn á aðfaranótt miðvikudagsins þá vikuna, grét meira og minna alla þá nótt vegna eyrnabólgu. Hann var svo heima fram yfir helgina. Í síðustu viku var ég heima með Örnu, alla vikuna. Á föstudeginum var hún orðin býsna góð og leyfði ég mér að fara með hana í verslun en það orsakaði hitaaukningu - henni sló niður og er enn lasin, húrra, fyrir mömmu!
1 Athugasemd/ir:
At 21 mars, 2006 15:22, Nafnlaus said…
við erum greinilega í sama pakkanum. Saga Huld er í fyrsta sinn veik hérna úti og liggur fyrir með hita og ónot í beinum...góðan bata yfir til ykkar....
Skrifa ummæli
<< Heim